Forsíđa

16.08.2010

Kæru notendur

Ákveðið hefur verið að flýta hitting mánaðarins og verður hann fimmtudaginn 19. ágúst að þessu sinni. Við ætlum að skella okkur í bíó á myndina SALT með Angelinu Jolie í Háskólabíó. Sýningin hefst kl 17:50. Best væri að hittast svona15 mín áður en myndin byrjar við innganginn. Vinsamlegast sendið mér e-mail á vinanet@redcross.is með staðfestingu um komu, svo ég viti hvað er von á mörgum.

 

Um myndina:

CIA fulltrúinn Evelyn Salt (Angelina Jolie) sór eið heiðurs og hollustu til lands síns. En það mun reyna á það þegar rússneskur njósnari sakar hana um að vera svikara. Salt fer á flótta og þarf að nota alla sína hæfileika og reynslu til að forðast handtöku. Tilraunir Salt til að hreinsa mannorð sitt vekja upp efa um ætlanir hennar þegar leitin að sannleikanum nær hámarki og spurningin „Hver er Salt?“ verður svarað.

Hér er einnig linkur inn á umsögn um myndina á www.imdb.com

http://www.imdb.com/title/tt0944835/

 

Vonast til að sjá sem flesta

Kveðja

Guðný Verkefnastjóri

 

15. júlí 2010

Kæru notendur Vinanets

Nú fer að líða að júlí hittingunum okkar. Þriðjudagskvöldið 20. júlí verður farið í keilu í Keiluhöllinni Öskjuhlíð. Leikurinn hefst klukkan 20 og því mæli ég með að við hittumst við innganginn ca. 19:50. Keilukvöld var haldið í fyrra og heppnaðist mjög vel. Keppnisandinn kom í ljós og fólk skemmti sér vel þrátt fyrir mis-mikla hæfni með kúluna. Enda þarf maður ekkert endilega að vera góður í einhverju til að finnast það skemtilegt. :)

Spjallið verður LOKAÐ þetta kvöld þar sem hittingurinn ber upp á þriðjudagskvöld sem eru venjulega spjallkvöldin okkar, endilega komið bara á hittinginn í staðinn. :)

Þeir sem hafa áhuga á að koma í keilu sendið mér staðfestingarpóst á vinanet@redcross.is eða á gudnyth@redcross.is ekki seinna en mánudagsmorgunn því það þarf að panta brautinar.

Kveðja,

Guðný

Verkefnastjóri Vinanets

18. júní 2010

 Kæru notendur Vinanets


Núna er komið að frábærum hitting hjá okkur á Vinanetinu. Sunnudagskvöldið 20. júní ætlum við að hittast og halda spilakvöld þar sem spilað verður allt milli himins og jarðar. Síðustu spilakvöld sem haldin hafa verið hafa tekist frábærlega og er ekki von á öðru en að þetta muni verða stórskemmtilegt :) Í boði verða bæði borðspil (t.d. Party og co og scrabble) og venjuleg spil og það verður boðið upp á popp og vatn en hver og einn má koma með það sem hann vill borða eða drekka.

Fjörið hefst kl 19:00 og verður í húsi Reykjavíkurdeildar Rauða krossins að Laugavegi 120, 4. hæð. Þetta er stóra hvíta Kaupþingshúsið við Hlemm og er gengið inn að aftan á móts við Devitos pizza.

Ég vil biðja þá sem hafa áhuga á að koma að senda mér staðfestingapóst sem fyrst til að ég viti hversu margir munu láta sjá sig.

Vegna þess að hittingurinn hittist á sunnudagskvöld sem eru yfirleitt okkar spjallkvöld verður EKKI opið Vinanetsspjall þetta kvöld þannig að endilega frekar að mæta á hitting. :)
Hlakka til að sjá sem flesta

Kær kveðja,

Guðný
Verkefnastjóri Vinanets

 

22. maí 2010

Kæru notendur Vinanets

Sunnudaginn 23. maí, Hvítasunnudag mun Vinanet verða lokað. Við óskum ykkur góðrar og gleðilegrar helgar :) 

Kær kveðja,

Garðar Örn, verkefnastjóri

 

1. apríl 2010

Páskakveðja

Kæru notendur. Ég vil óska ykkur öllum gleðilegra páska og vona að þið eigið eftir að hafa það notarlegt. Ég vil einnig nota tækifærið og láta ykkur vita að Vinanet verður lokað sunnudaginn 4. apríl, Páskadag.

Kær kveðja,

Garðar Verkefnastjóri Vinanets

 

23. mars 2010

Kæru notendur Vinanets

Núna er komið að febrúarhittingnum okkar. Hann verður haldinn núna á fimmtudaginn, 25. mars kl 19:30-22:00. Í þessum hitting ætlum við að halda spilakvöld en í boði verða ýmis spil, bæði spurningaspil og venjuleg spil. Popp og vatn í boði en þeir sem vilja mæta endilega með eitthvað annað með sér.

Hittingurinn verður milli klukkan 19:30-22:00 og verður haldinn í húsnæði Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands, Laugavegi 120, stórt hvítt hús þar sem Arion banki er til húsa, gengið inn að aftanverðu ská á móti Devitos pizza. Ef hurðin er læst skal dinglað á bjöllu merktri RKÍ.

Endilega látið mig vita ef þið viljið mæta með því að senda email á gardar@redcross.is eða á vinanet@redcross.is sem allra fyrst.

Hlakka til að sjá sem flesta.

Kær kveðja,
Garðar Örn
Verkefnastjóri Vinanets

 

23. febrúar 2010

Kæru notendur Vinanets

Núna er komið að febrúarhittingnum okkar. Af óviðráðanlegum ástæðum gátum við ekki haft hann þann 20. febrúar en í staðinn verður hann á morgun, miðvikudaginn 24. febrúar. Í þessum hitting ætlum við að halda spilakvöld en í boði verða ýmis spil, bæði spurningaspil og venjuleg spil. Popp og vatn í boði en þeir sem vilja mæta endilega með eitthvað annað með sér.

Hittingurinn verður milli klukkan 19:30-22:00 og verður haldinn í húsnæði Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands, Laugavegi 120, stórt hvítt hús þar sem Arion banki er til húsa, gengið inn að aftanverðu ská á móti Devitos pizza. Ef hurðin er læst skal dinglað á bjöllu merktri RKÍ.

Endilega látið mig vita ef þið viljið mæta með því að senda email á gardar@redcross.is eða á vinanet@redcross.is sem allra fyrst.

Hlakka til að sjá sem flesta.

Kær kveðja,
Garðar Örn
Verkefnastjóri Vinanets
 

 

17. janúar 2010

Komið þið sælir kæru notendur og gleðilegt nýtt ár :)

Núna er komið að hittingi janúar og við ætlum í þetta skiptið að slá upp pizzupartýi :) Við munum vera með botna og álegg og hver og einn gerir þá pizzu sem honum langar mest í og síðan borðum við þetta saman. Á staðnum verður svona það helsta hráefni sem notað er en ef fólk vill koma með eitthvað sérstakt þá er það alveg velkomið.

Hittingurinn mun fara fram miðvikudaginn 20. janúar frá kl 18-21 og verður hann haldinn á Laugavegi 120 á 5. hæð þar sem Reykjavíkurdeild Rauða krossins er til húsa.

Ég vil biðja alla um að senda mér staðfestingu á mætingu á vinanet@redcross.is eða á gardar@redcross.is sem fyrst og ekki seinna en á hádegi á miðvikudeginum til þess að við getum sirkað út hversu mikið hráefni skal kaupa.

Hlakka til að sjá sem flesta,

Kær kveðja,

Garðar
Verkefnastjóri Vinanets

17. desember 2009

Kæru notendur Vinanets

Þá er komið að síðasta hittingnum okkar þetta árið en hann mun fara fram núna á sunnudaginn 20. desember. Þar sem það er stutt í jólin þá ætlum við að hafa þennan hitting með jólalegu ívafi. Vinanet ætlar að bjóða upp á smákökur, heitt súkkulaði, mandarínur og sælgæti, við ætlum að hlusta á jólatónlist og gera eitthvað skemmtilega jólalegt saman. Aldrei að vita nema við grípum í spil eða eitthvað slíkt. Einnig væri rosa gaman ef allir kæmu með lítinn pakka, alls ekki meira en 500 kr virði og við förum í pakkaleik þar sem við skiptumst á pökkum, höldum svona okkar litlu jól :)

Hittingurinn mun fara fram eins og áður segir á sunnudaginn kemur, þann 20. desember og er mæting klukkan 18:00 á Laugaveg 120 þar sem Reykjavíkurdeild Rauða krossins er til húsa upp á 5. hæð. Gengið er inn að aftanverðu, ská á móti Devito´s pizza, þetta er stórt hvítt hús þar sem Arion banki (Kaupþing) er til húsa.

Þar sem að um er að ræða sunnudagskvöld verður Vinanetsspjallið lokað og því um að gera að allir mæti og geri eitthvað skemmtilegt svona rétt fyrir jólin. Þeir sem ætla að mæta vinsamlegast sendið tölvupóst á vinanet@redcross.is eða á gardar@redcross.is til þess að við vitum hversu margir eru væntanlegir.

Sjáumst hress, kær kveðja

Garðar, Verkefnastjóri Vinanets

17. nóvember 2009

Kæru notendur Vinanets

Núna er komið að næsta hitting okkar og ætlum við að vera menningaleg svona rétt fyrir jólin og skella okkur á safn. Það safn sem við ætlum að kíkja á er Þjóðminjasafnið. Farið verður á föstudaginn næsta, 20. nóvember. Við ætlum að hittast klukkan 15:15 í anddyri safnsins og gerum ráð fyrir að við verðum búin í kringum 17:00.

Við vonumst til að sem flestir sjái sér fært að mæta en endilega látið vita með því að senda tölvupóst á vinanet@redcross.is eða á gardar@redcross.is. Hittingurinn verður notendum að kostnaðarlausu.

Sjáumst á föstudaginn

Kær kveðja

Garðar Verkefnastjóri

6. september 2009

Kæru notendur Vinanets

Hittingar verða framvegis með aðeins breyttu sniði. Hingað til höfum við verið með hittinga í byrjun mánaðar en framvegis verða hittingar alltaf 20. hvers mánaðar og breytir þá engu hvaða dagur það er, verðum bara alltaf með fasta dagsetningu 20. hvers mánaðar. Ef að það hittist þannig á að um er að ræða þriðjudagskvöld eða sunnudagskvöld sem eru spjallkvöldin okkar þá er spjallið lokað þann daginn og við hvetjum fólk til að mæta í hittingana.

Þessa hugmynd fengum við frá Danska Rauða krossinum en þeir starfrækja sambærilegt spjall þar sem kallast Ensom Ung. Þeir hafa haft þennan hátt á í langan tíma og reynist það mjög vel og hefur frekar fjölgað þeim sem taka þátt í hittingum hjá þeim fyrir vikið.

Fyrsti hittingur með þessu nýja fyrirkomulagi verður því sunnudaginn 20. september næstkomandi og þar sem um er að ræða sunnudag mun spjallið vera lokað og hittingurinn verður á sama tíma og spjalltíminn eða milli kl 19-22. Um verður að ræða spilakvöld sem hafa ávallt vakið mikla lukku. Staðsetning verður auglýst þegar nær dregur.

Með kærri kveðju,

Garðar Örn

Verkefnastjóri Vinanets

 

29. júní 2009

Hittingur júlímánaðar

Kæru notendur vinanets. Nú fer að styttast í mánaðarlegan hitting og verður næsti hittingur miðvikudaginn 8. júlí næstkomandi. Ákveðið hefur verið að hafa kaffihúsakvöld en það er eitthvað sem við höfum gert áður og vakti mikla lukku. Ekki hefur enn verið ákveðið hvaða kaffihús verður fyrir valinu en það verður ákveðið þegar við erum komin nokkurn veginn á hreint hversu margir munu mæta. Við munum reyna að semja um gott verð fyrir heitan drykk og tertusneið. Á kaffihúsinu ætlum við jafnframt að vera með stórskemmtilega spurningakeppni, nokkurs konar "pubquiz" sem er feikna vinsælt þessa dagana. Veglegir vinningar í boði fyrir vinningsliðið :)  Endilega skráðu þig á skemmtilegt kaffihúsakvöld með því að senda tölvupóst á vinanet@redcross.is eða gardar@redcross.is. Nánari upplýsingar verða senda út þegar nær dregur en tíminn sem um ræðir er frá 19:30-21:30

Kær kveðja,

Garðar Örn, Verkefnastjóri Vinanets

 

26. maí 2009

Hittingafréttir

Notendur og sjálfboðaliðar Vinanets hittust síðastliðinn miðvikudag og skelltu sér saman í keilu í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð. Voru spilaðir tveir leikir og var fólk að standa sig mjög vel og höfðu allir gaman af.

Fimmtudaginn 4. júní næstkomandi verður síðan hittingur júnímánaðar og höfum við ákveðið að halda spilakvöld. Nánari upplýsingar um þann hitting eru undir liðnum hittingar.

Í hverjum mánuði hittast notendur og sjálfboðaliðar og gera eitthvað skemmtilegt saman og er það eitt af markmiðum okkar í því að draga úr félagslegri einangrun ungs fólks og fá ungt fólk til að koma og gera eitthvað skemmtilegt saman.

 

Vinanet, spjall fyrir alla

Spjallið opnar formlega 1. febrúar

Hvað er vinanet?

Vinanet er nýtt samstarfsverkefni Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og Ungmennadeildar Reykjavíkurdeildar Rauða krossins. Vinanet er hugsað sem spjall fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára sem hefur einangrað sig frá samfélaginu. Ætlunin er að ná til þessa hóps með aðstoð Internetsins en það er sá vettvangur þar sem auðvelt er að ná til sem flestra. Á Vinaneti getur fólk rætt saman á uppbyggilegan hátt um hin ýmsu málefni. Einu sinni í mánuði verða hittingar meðal þeirra sem eru á spjallinu ásamt sjálfboðaliðum og verður ýmislegt skemmtilegt gert eins og fara saman í bíó, í keilu, á skauta, á kaffihús og svo framvegis.

Hlutverk sjálfboðaliða er að halda utan um spjallið og sjá til þess að notendur spjalli saman á jákvæðum nótum ásamt því að ýta undir að allir taki virkan þátt – bæði í spjallinu og í mánaðarlegum hittingum utan netheima. Sjálfboðaliðar verkefnisins hafa setið grunnnámskeið Vinanets og fengið þjálfun í viðtalstækni.

Vinanet verður opið alla sunnudaga og þriðjudaga milli kl. 18:00-21:00 á slóðinni www.vinanet.is. Ungt fólk á aldrinum 16-25 er hvatt til þess að skoða síðuna, skrá sig og taka þátt í spjallinu.

Nýr notandi

Til að geta tekið þátt í spjallinu og skoðað vini á netinu þarft þú að vera innskráður notandi. Þú þarft að skrá nafnið þitt, kennitöluna þína og netfangið þitt. Kennitalan og netfang þitt kemur hvergi fram á síðunni og Rauði krossinn mun ekki gefa upplýsingar um notendur til þriðja aðila. Það er mjög mikilvægt að notendur gefi upp virkt netfang því upplýsingar um síðuna eru sendar á það. Hver notendaumsókn er skoðuð sérstaklega og hafir þú fengið höfnun er lag að breyta umsókn þinni í samræmi við athugasemdir vefstjóra og senda aftur.

Vinir á netinu

Þú getur breytt þínum upplýsingum hvenær sem er - það er stuttur texti um þig, áhugamál, aldur og fleira. Ráðlegt er að notendur gefi ekki upp persónulegar upplýsingar á netinu. Mælt er með að notendur nýti hittinga Vinanets til að skiptast á persónulegum upplýsingum svo sem símanúmerum og/eða tölvunetföng ef vilji er fyrir því.

Reglur

- Aðgát skal höfð í nærveru sálar
- Síðan er ætluð fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára
- Síðan er ekki fyrir fólk í makaleit
- Brottvísunarsök ef fólk virðir ekki þessar reglur og hagar sér óviðeigandi eða ósiðlega

Skráning á spjall
innskráning á spjall
Vinir á netinu
Vinir á netinu
Tenglar
Hittingar